Skólaslit Pólska skólans

polski skoli

 

Skólaslit Pólska skólans sem hefur aðsetur í Fellaskóla fóru fram laugardaginn 23. maí í Fellaskóla. Nemendur í Pólska skólanum í vetur voru tæplega 350 og um 10% nemenda koma úr Fellaskóla. Pólski skólinn hefur starfað í 18 ár. Kennslan fer fram á laugardögum og nemendur eru bæði í leikskóla og grunnskóla. Nemendur útskrifast úr skólanum eftir 8 ár og að þessu sinni útskrifuðust 19 nemendur. Fjölmenni var við útskriftina.  Það er mikilvægt að nemendur öðlist færni í eigin móðurmáli ásamt íslensku og því er starfsemi Pólska skólans og annarra sambærilegra skóla ákaflega mikilvæg.