Heimsókn
Síðastliðinn föstudag fengum við skemmtilega heimsókn. Rúmlega 60 skólastjórnendur úr skólum sunnan Reykjavíkur og af Reykjanesi komu til að fræðast um stefnu Fellaskóla og hvernig við vinnum í fjölmenningarlegum nemendahópi. Inga Björg sagði frá því hvernig við vinnum með tónlist og stuðlum að sköpun í skólastarfinu, svo sem með samstarfi við Tónskóla Sigursveins, Tóney og Skólahljómsveit Árbæjar- og Breiðholts og einnig hvernig við tengjum saman lestur, bókmenntir og sköpun í þemavikum skólans Brynja sagði frá því hvernig við vinnum með læsi í skólanum. Jafnframt upplýsti hún um öflugt samstarfs leikskólanna í hverfinu og Fellaskóla. Að lokum heimsóttu gestirnir nokkrar kennslustofur á eldra stigi og skoðuðu Listafell.