Barnamenningarhátíð
Í dag var líf og fjör í Fella- og Hólakirkju þegar haldnir voru glæsilegir tónleikar undir yfirskriftinni Viva la Musica – KrakkaBarokk sem hluti af Barnamenningarhátíð 2026.
Á tónleikunum komu fram nemendur úr 2. bekk Fellaskóla og 2. bekk Hólabrekkuskóla, ásamt kór Hólabrekkuskóla og fiðlunemendum úr Fellaskóla. Auk þeirra stigu á svið fleiri listamenn og sýndu hæfileika sína í fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá sem vakti mikla ánægju viðstaddra.
Viðburðinum var stýrt af Dijá Sigursveinsdóttur, kennara við Tónskóla Sigursveins, sem hefur leitt verkefnið af fagmennsku og eldmóði.
Tónleikarnir heppnuðust afar vel og voru sannkölluð hátíð tónlistar og sköpunar. Fellaskóli vill færa Tónskólanum kærar þakkir fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf og horfir bjartsýnn til framtíðar með áframhaldandi eflingu þess á næstu misserum.
Um páskana tók fiðluhópurinn einnig þátt í KrakkaBarokki í Eldborg, fjölskyldutónleikum á vegum Hörpu og Reykjavík Early Music Festival. Þar stóðu nemendur sig með mikilli prýði og er skólinn óendanlega stoltur af frammistöðu þeirra. Tónleikunum í Hörpu var stjórnað af Diljá Sigursveinsdóttur og Önnu Hugadóttur.
Hér fyrir neðan má finna hlekk á tónleikana í Hörpu og myndir frá tónleikunum í dag.