Vegleg gjöf til Nemendafélags Fellaskóla
Nemendafélag Fellaskóla fékk nýverið veglega peningagjöf frá 40 ára útskriftarárgangi Fellaskóla. Tveir fulltrúar úr árganginum komu og afhentu stjórn nemendafélagsins 100.000 krónur sem höfðu safnast þegar útskriftarárgangurinn hittist síðastliðið vor. Nemendur voru að vonum ánægðir með gjöfina og munu í framhaldinu setjast niður og ákveða hvernig henni verður varið. Myndin er frá afhendingu gjafarinnar. Nemendur þakka kærlega fyrir gjöfina og þann hlýhug sem henni fylgir.