Haustsprettur - uppskeruhátið
Í dag lauk lestrarsprettinum, sem er keppni á milli árganga í fjölda lesinna blaðsíðna.
Keppnin stóð frá 12.-20.október og nú svigna greinar lestrartrésins undan laufblöðum sem krakkarnir hengdu á greinarnar, þegar þau skiluðu lesinni bók.
Krakkarnir stóðu sig afburða vel og lásu samtals 36277 blaðsíður.
2. bekkur sigraði í sinni árgangakeppni ; kepptu við 1. bekk = 122 lesnar blaðsíður á nemanda
3. bekkur sigraði í sinni árgangakeppni ; kepptu við 4.bekk = 205 lesnar blaðsíður á nemanda
6. bekkur sigraði í sinni árgangakeppni ; kepptu við 5. bekk = 226 lesnar blaðsiður á nemanda
9. bekkur sigraði í unglingadeildinni ÞÆR lásu = 153 blaðsíður á nemanda.
Við erum endalaust stolt af elju og áhuga nemendanna.
Lestur er bestur