Haustsprettur
Haustsprettur er árlegur viðburður á skólasafni Fellaskóla.
Í ár stendur lestrarspretturinn yfir 12.-20.október
Árgangar keppa um fjölda lesinna blaðsíðna
Nemendur velja sér bók, skrá á lestrarmiða blaðsíðufjölda, skila í kassa á skólasafninu og fá laufblað í haustlitum til að hengja á LESTRARTRÉÐ , sem er lifandi tré, og eftir því sem á líður ákeppnina fyllist tréð af fallegum haustlaufum.
Nemendur eru mjög áhugasamir og þetta verkefni er mjög lestarhvetjandi.
Nemendur lesa bæði heima og í skólanum.