Forseti Íslands heimsækir Móðurmálssamtökin

Heimsókn

 

 

Síðastliðinn laugardag heimsótti forseti Íslands Móðurmálssamtökin í Fellaskóla. Innan Móðurmálssamtakanna fer fram kennsla á 25 tungumálum. Í Fellaskóla er kennt á pólsku  serbnesku og úkranisku en jafnframt komu nemendur úr öðrum tungumálahópum til að taka á móti forsetanum. Heimsóknin hófst með stuttri athöfn í sal Fellaskóla og síðan heimsótti forsetinn nokkrar kennslustofur. Einnig hitti forsetinn stjórn Móðurmáls. Forsetinn lagði áherslu á mikilvægi móðurmálskennslu fyrir nemendur ásamt því að þeir læri íslensku. Samtökin Móðurmál er mjög mikilvægur vettvangur fyrir fjöltyngd börn og fjölskyldur þeirra. Með starfi samtakanna fá börn tækifæri til að rækta tungumál sín, styrkja sjálfsmynd sína og varðveita tengslin við menningu upprunalands. Öll tungumál skipta mál og kunnátta í móðurmáli er grunnur að öllu námi.