Reikistjörnurnar
Á miðvikudag sýndi 6.bekkur leikritið um reikistjörnurnar. Þau höfðu æft vel í 3 vikur bæði heima og í skólanum. Þetta er leikrit sem 6.bekkur sýnir á hverju ári en búið að bæta við fleiri lögum. Það kemur af því að þessi bekkur hefur haft vikulegar söngæfingar alveg frá því í 3.bekk og kunna þau því mörg lög og eru fljót að læra texta. Haldnar voru tvær sýningar, ein fyrir foreldra og ein fyrir nemendur skólans. Mjög margir foreldrar komu á fyrri sýninguna og fullur salur var á þeirri síðari. Vel gekk í bæði skiptin.